29.12.08

Launahækkun

Skv. frétt í Namibian var tilkynnt um launahækkun æðstu ráðamanna í Namibíu á Þorláksmessu. Munu ráðherrar, aðstoðarráðherrar og þingmenn fá 24 hundraðshluta hækkun á laun sín. Forsvarsmenn helstu verkalýðsfélaga í landinu hafa ekki tjáð sig um þetta enn.

7.12.08

Þjóð í sorg

Hinn 26. nóvember sl. lést móðir fyrsta forseta Namibíu. Gamla konan, sem gekk undir nafninu Gwakondombolo, var fjörgömul er hún lést. Eins og með marga Namibíumenn er fæðingardagur hennar ekki þekktur með vissu, en álitið er að hún hafi verið um 110 ára þegar hún dó.

Útför hennar fór fram í gær, laugardag, í heimabæ hennar í norður Namibíu. Voru öll gistiheimili í grenndinni upppöntuð.

Aðstoð við Simbabve

Í Simbabve gaus upp kólerufaraldur fyrir stuttu síðan. Hefur stjórn Simbabve biðlað til alþjóðasamfélagsins að koma til aðstoðar. Ákváðu namibísk stjórnvöld að leggja fram eina milljón Namibíudala, u.þ.b. 14 milljónir króna, til kaupa á lyfjum. Verða lyfin send til Simbabve á næstu dögum.

4.12.08

Bann við starfsmannaleigum

Hinn fyrsta mars nk. verður starfsemi starfsmannaleiga bönnuð í Namibíu. Er þetta skv. nýjum lögum um atvinnuhætti. Stærsta starfsmannaleiga Namibíu hefur undanfarið sótt mál í dómstólum gegn þessum þætti nýju laganna. Sl. mánudag tapaði starfsmannaleigan málinu fyrir hæstarétti Namibíu.

Álitið er að í Namibíu séu milli 10 og 16 þúsund manns starfandi í gegnum starfsmannaleigur. Sú stærsta hefur milli sex og átta þúsund á sínum vegum.

Skiptar skoðanir eru hvort bannið sé gott fyrir verkafólk. Sumir halda fram að fyrirtæki muni leggja meira á sig að velja gott fólk og að veita því góða þjálfun heldur en gert er í dag. Aðrir óttast að eitthvað af því fólki sem í dag starfar á vegum leiganna muni verða atvinnulaust.

Athygli vakti að einn hæstaréttardómarinn kallaði starfsmannaleigur nýmóðins þrælahald, þar sem litið væri á verkafólk sem hverja aðra vöru til viðskipta.

Olympíubjórleikar


Namibíumenn eru mjög klárir í að brugga bjór. Því er ekki hægt að neita. Tafel fer þar framarlega í flokki, sem ein af helstu bjórtegundum Ölgerðar Namibíu. Fyrir ekki löngu síðan fékk Tafel gullverðlaun í ólympíuleikum í bjórframleiðslu. Evrópska bjórstjarnan er keppnin kölluð. Eru þeir ósköp stoltir yfir árangrinum.

Enda er mjöðurinn góður.